Ronkoo bloggar
14.09.2007
Félagi minn Rúnar Kárason er með snilldarblogg á ronkoo.blogspot.com. Hann er með einskonar líkamsræktardagbók í gangi. Hann díteilar allar æfingarnar sínar í handboltanum og lyftingum með nokkur tips inn á milli ásamt góðum vídjóum. Strákurinn er að komast í feiknarform eftir hryggbrot og ég get ekki betur séð en að hér sé heimsklasa íþróttamaður í mótun. Það verður gaman að fylgjast með þessu. Þarna um daginn var vídjó sem hann tók af sjálfum sér í einhverjum jötunæfingum. Ég vil sjá meira af þessu og þá jafnvel með útskýringum.
