Tækjapælingar
26.09.2007
Ég hef ótrúlega gaman af blogginu hjá Kára Harðarsyni.
Núna er hann í einhverjum erfiðleikum með tækjaflóru nútímastofunnar. HDDVD og BlueRay og HD1080i o.s.fv. Ég er einmitt búinn að vera að pæla mikið í þessu þar sem ég er að græja mína eigin stofu. Ég er svo mikill nördi að það er ægilegt. Vonandi hefur einhver gaman af þessu:
Ég er búinn að liggja með höfuðið í bleyti yfir svipuð vandamáli. Ég er nýfluttur til útlanda og íbúðin heima á Íslandi er í útleigu með öllum græjum. Nú á ég engar græjur og þarf að byrja upp á nýtt. Flestallt sem ég horfi á er hægt að sækja á netinu. Ég nota síðu sem heitir giganews.com til að kaupa aðgang að spegluðu Usenet eða fréttahópum (gamla góða). Svo nota ég newzbin.com til að leita að skjölum sem hafa verið send á fréttahópa og nota svo eitthvert newsgroup forrit sem styður NZB XML staðalinn til að sækja skrárnar.
Ég festi kaup á LCD sjónvarpsskjá frá Philips á Amazon.co.uk í gær. Tækið á að koma á morgun og reynslunni samkvæmt á það að standast. Amazon.co.uk er frábært hérna úti - það þarf ekki að bíða eftir tollinum og borga aukagjöld sem ég kann ekki einu sinni nöfnin á.
Ég ætla svo að tengja fartölvuna mína við imbakassann og spila beint af fartölvunni því hún ræður við flest allt þ.á.m háskerpi 720 línu myndefni.
Undir sjónvarpinu sitja Creative T20 hátalarar sem kostuðu ótrúlega lítið miðað við hljómgæði. Við þá er tengt Airport Express sem iTunes kann að senda hljóð um innranetið til afspilunar. Svo ef fólk er með Linux kassa heima hjá sér er gaman að setja upp mt-daapd (heitir nú Firefly Media Server) sem talar við iTunes.
Síðast en ekki síst er ég að pæla í því að kaupa mér Xbox360. Félagi minn í vinnunni er búinn að gera skriptur sem breyta vídjófælum í eina vídjósniðið sem XboX360 vill lesa. Með þessu móti þarf ekki lengur að drösla fartölvunni að sjónvarpinu í hvert sinn sem maður vill horfa á sjónvarpið. Öllu er hlaðið á harðan disk í XboX360 og einfalt mál að velja úr Media Library fídusnum.
Draumatækið er lítið Linux box með háskerpu video útgangi eins og Apple TV. Tækið þarf að vera með Samba möppu sem maður getur hent öllu á risastóran og uppfæranlegan harðan disk(bónus ef það styður symlink og getur lesið beint yfir netið með Samba). Svo er fjarstýrt viðmót á tækinu þar sem auðvelt er að velja vídjófæl eða tónlist til að spila. Apple TV er mjög svipað þessu nema hvað að þar er allt lokað og bara eftir höfði Apple.

sæll brói:D
flott blogg þó ég skilji ekki helminginn,
hlakka til að koma í heimsókn ekki á morgun heldur hinn!!
get ekki beðið eftir að sjá íbúðina líka