The Secret
06.09.2007
Ókei ég veit ég er búinn að blogga pínu um þetta. Sorry. Ég bara þoli ekki The Secret.
The Secret er annars vegar með ein góð skilaboð “hugsaðu jákvætt og markvisst”. Hinsvegar er fullt af ósannleik og hálfsannleik um vísindalegar útskýringar á því hvernig hugsanir einar og sér stjórna veröldinni. Vitnað er í Einstein, Churchill og fleiri stórmenni mannkynssögunnar og þau sögð hafa átt Leyndarmálinu að þakka alla sína velgengni. Jákvæð hugsun ein og sér! Jafnframt þessu staðhæfir höfundurinn að hún hafi t.a.m. misst marga tugi kílóa bara með því að sjá líkama sinn fyrir sér í því ástandi sem hún vildi vera í. Svo hélt hún áfram að borða alveg jafn mikið og hún gerði en allt í einu byrjaði allt að gerast og bara útaf hugsunum hennar. Heimurinn svarar svona eftirspurnum á sama hátt og maður pantar vörur úr auglýsingabæklingi. Maður þarf bara að taka upp símtólið og biðja um það sem maður vill. Allt ókeypis. Svo lengi sem þú hugsar nógu jákvætt og mikið.
Frá markaðsfræðilegu sjónarmiði er bókin/DVD varan ótrúlega vel unnin. Oprah Winfrey var fengin til liðs og svo er engu til sparað í umgjörðinni. Kynningarvídjóið fyrir DVD diskinn er svona “teaser” þar sem eitthvað leyniskjal - augljóslega Leyndarmálið sjálft - fer á milli manna í fornöld. Einstein tekur við bréfinu og felur það gætilega í skúffunni á einkaleyfisstofunni í Swiss. Svo er Abraham Lincoln sjálfur kominn með það í hendurnar og verður forseti Bandaríkjanna. Áhorfandinn hugsar með sér í taugastrekktri forvitni “Hvaða leyndarmál hafa þessi stórmenni að geyma sem enginn má sjá? Get ég orðið stórmenni ef leyniskjalið væri í mínum fórum?”. Svo kemur svona sprenging eins og í hasarmyndaauglýsingu og eftir situr insiglað leyniskjalið með áletruninni “The Secret - out now”. Tilbúið til neyslu. “Jess! Öll þessi ár og loksins geta ég verið stórmenni eins og Einstein og Lincoln.”
Okei. Hér höfum við það sem markaðssérfræðingar eru meistarar í. Þeir geta sagt [mörgum] okkar sömu söguna aftur og aftur. Sagan að við séum ÖLL sérstök ef við bara neytum vörunnar þeirra. Ef við reiðum peningana fram getum við skarað fram úr öllum heiminum. Hefurðu ekki séð auglýsinguna þar sem gaurinn fær sér kók og allur heimurinn bregst við? Það er horft á eftir honum niður allar götur og í lokinn fær hann sætustu stelpuna og beint í sleik takk fyrir. Hér er samt vottur af hreinskilni. Þetta er allt gert í gríni. Kókakóla VITA alveg að við trúum þessu ekki. Þetta er bara kjánaleg auglýsing. Að þessu leiti er Kók og fleiri soldið að gera grín að sjálfum sér. Þetta er allt búið að snúast upp í andhverfu og kaldhæðni. Leyndarmálið hinsvegar, gerir atlögu að því að halda grafalvarlegu andliti þegar það segir fólki sömu sögu. Það er enginn að spauga nema bakvið tjöldin kannski.
Frá vísindalegu sjónvarmiði stenst [auðvitað] ekkert af þessu. Ef til vill væri hægt að færa nokkuð góð rök fyrir því að neikvæður hugsunarháttur nái manni ekki langt og að jákvæður hugsunarháttur verði frekar til þess að maður geri atlögu að þeim markmiðum sem maður setur sér. Þarf samt að borga markaðsfræðingum og svindlurum til að segja sér það? Er ekki hægt að hringja í mömmu eða spjalla við vini sína til að fá hughreystingu?
Meira
http://www.slate.com/id/2165746/
