Láttu landvættina leiða þig í gegnum vinnudaginn og fylla þig víkingamóð svo að hverju vandamáli megi mæta með íslenzku grettistaki. Sóttu þessa skjáborðsmynd og miðjusettu svo að hlutföllin séu rétt og skjaldamerkið falli nákvæmlega í miðju skjáborðsins.

Skjaldamerki Wallpaper 1920 x 1080
Jökull says:
daginn
Jökull says:
hvernig lafir hann ?
Kári says:
hann er til vinstri sko
Jökull says:
líka minn
Jökull says:
afhverju sgir fólk “norður og niður”
Jökull says:
er ekki norður “upp” á okkar kortum ?
Jökull says:
kannski er meira verið að tala um það hvað norðurlöndin eru óvistvænir staðir
Jökull says:
og að evrópubúar sem eiga ekkert gott skilið eigi að fara þangað og svo “niður” til … helvítis ?
Búinn að vera að fikta í Django vefsíðugrindinni. Ég held að ég hafi aldrei skemmt mér eins mikið við vefsíðugerð. Fyrsta verkefnið mitt í Django er nú komið upp:
Gallerí Ágúst.
Nú trúir enginn á Guð lengur. Þá þarf að stökkva á næsta rusl!
http://jonabjorgsaetran.blog.is/blog/jonabjorgsaetran/entry/265780/

Djöfull er ég með stór brjóst.
Silverchair er sú hljómsveit sem hefur ábyggilega breyst sem mest í gegnum tíðina af öllum þeim sem ég hef hlustað á. Fólk er að tala um tímabil hjá Bítlunum - sýrutímabil og væmnitímabil og rokkabillí tímabil. Þetta er brandari. Daniel Johns þróaðist úr grunge í e-pillu-popp í söngleikjatónlist á cirka 12 árum. Nýjasta platan heitir Young Modern og er sett saman undir flaggi Silverchair (fyrsta hljómsveitin hans sem voru í grugginu). Stefnan og lagasmíðirnar eru í dag alfarið undir stjórn Daniel Johns sem syngur og spilar á hér um bil allt nema trommur og bassa. Að auki hefur hann fengið myndarlega strengjasveit til liðs við útsetningar.
Á þessari nýjustu plötu er hann í miklum ham. Þróunin frá grugginu sem hófst á Diorama er með fullu lokið og áhrif þess fjarri góðu gamni. Hér er Johns hvorki bitur né reiður. Tónninn er allt annar og glaðværari. Melódíurnar eru tælandi og lífsþyrstar. Söngurinn er jafn fjölbreyttur og ástin sjálf. Stíll útsetninga og hljómurinn er sterk vísun í söngleiki. Gott ef þetta gæti ekki flokkast sem söngleikjatónlist ef uppsetning í fullri lengd fylgdi með.
Mörgum aðdáendum gremst þessi þróun hljómsveitarinnar. T.d. má lesa leiðindakomment á Amazon Reviews um að Johns sé kerling í dag og geti ekkert rokkað. Guð hjálpi þeim sem álíta þessa þróun neikvæða. Hver hefur ekki fengið nóg af reiði og gruggi? Hljómplata sumarsins er lent! Nú þurfum við Gísli að setja upp leiksýningu.
Það er ekki hægt að segja annað en að íslenskur markaður sé heilbrigður og standi sig vel um þessar mundir. Úrvalsvísitalann er í methæðum, CCP skilar veglegum hagnaði, Kaupþing orðið stærra en Starbucks og svo má lengi telja. Maður býr í ótrúlegu umhverfi og vonandi er þetta bara það sem koma skal fyrir komandi kynslóðir.
Ég hlustaði á brot úr ræðu Ingibjargar Sólrúnu fyrir kosningar og mér fannst frábært að heyra hvernig hún tók á launamun kynjana. Áherslan var á endurmat á kvennstörfum þjóðfélagsins. Þessi störf eru mörg hver bundin kjarasamningum. Slíkt fyrirkomulag þarf að hugsa frá rótum.
Hvað á maður svo að kjósa?