Blogg

Photobooth

Photo 84

Photo 88

Pínulítið eins og Tiger Woods?

Photo 61

Photo 62

Sushi

Ég og pabbi gerðum saman sushi í gær. Pabbi sá reyndar um undirbúninginn sem var mesta vinnan en ég lærði heilmikið engu að síður og hlakka til að reyna þetta sjálfur þegar draumaeldhúsið í Kjartansgötu 7 verður tilbúið. Ég tók nokkrar myndir af gerð Makizushi sem er ein þekktasta gerð sushi. Við gerð Makizushi er notast við makisu til að rúlla öllu klabbinu inn í nori - þunn blöð af þurrkuðu þangi. Allt hráefni og búnaður fást í Nings á Suðurlandsbraut.

Smellið á myndina fyrir upprunalega stærð.

Topp 2006

Afrek

Trúlofaðist Freydísi

Keypti íbúð og gerði upp (framkvæmdir enn í gangi)
IMG_3305

Hætti í háskóla, fór að vinna, hætti að vinna og fór í háskóla.

Tónlist

Plötur

  • The Knife - Silent Shout
  • Mogwai - Zidane
  • Justin Timberlake - Futuresex/Lovesounds
  • ISIS - In Absense of Truth

Lög

  • AFI - Love Like Winter
  • The Knife - We Share our Mother’s Health
  • Tenacious D - Beelzeboss (The Final Showdown)
  • Tool - Right in Two, Jambi
  • Peter Bjorn & John - Young Folks
  • Allir house hittararnir á Barnum (Discopolis, Tiga o.fl all goes out to Sverrir djammari ársins 2006)

Heitt

  • Reddit.com, Netvibes.com, Flickr, torrent.is og blogg (lélegu bloggararnir sögðu að bloggið væri dautt árið 2005 og þar með lifnaði bloggið við)
  • House tónlist
  • Markaðsöflin, útrás og Ísland, viðskiptahugmyndir í vinahópnum
  • Pólverjar á Íslandi
  • Rafverkfræði, þjónustuverið í Vodafone
  • Ódýra símfélagið SKO
  • Tim O’Reilly og Web 2.0 - “The move to the internet as platform, and an understanding of the rules for success on that new platform. First among those rules is building applications that harness network effects to get better the more that people use them.”
  • Scott Adams

Kalt

  • Sjónvarpið, sjónvarpsdagskrá, Ásgeir Kolbeins, Morgunblaðið
  • Handónýtir tónlistarmenn (á kókaíni til dæmis)
  • Konur í engum nærbuxum, Ungfrú Ísland og almenn ólæti

Nýbakað Brauð

Ég er að horfa á bestu sjónvarpstöðina sem mér býðst á Digital Ísland - BBC Food. Rétt í þessu var Norðmaður nokkur að kynna áhorfendum norska matarsiði. Hann hefur stutt, ljóst hár og augu sem gefa til kynna að hér sé á ferð manneskja sem vill allt fyrir mig gera. Hann talar góða ensku með norskum áherslum sem gera ekkert nema ljá þessum hamingjusama þáttastjórnenda sjarma.

Vinur okkur gerði sér ferð út í hlöðu til að mjólka beljur. Hann skildi mjólkina að og þeytti rjóma. Svo þeytti hann enn meir og framreiddi fjör - ég meina smjör. Hann var svo hoppandi kátur yfir því að tengjast náttúrunni á þennan hátt. Hann brosti allan tíman út að eyrum og var greinilega stoltur af arfleið sinni. Svo setti hann smjörið í snjóinn og valhoppaði inn til bakarameistarans sem var reiðubúinn með næsta skammt af móður náttúru - nýmalað hveiti. Norðmaðurinn hnoðaði brauð af áfergju og gleði - greinilega búinn að finna sig með móður náttúru. Það spratt sviti fram á enni þáttastjórnendans þegar hann lýsti sinni útfærslu á klassísku alpabrauði (með ferskum fíkjum og valhnetum). Svo endaði þetta allt á því að hann smurði sér brauðsneið af nýbökuðu brauði með smjöri sem hann hafði gert með eigin höndum og tár lak niður kinnina.

Eric Schmidt

It’s fundamentally better to keep your money in a bank then in your pocket. It’s fundamentally better to keep software application […] and let a data center handle your apps.

Eric Schmidt; Web 2.0 Summit

Afríka missti af lestinni

Opnið nýjan glugga og fiktið í flash kynningu á “Human Development Trends 2005″ skýrslunni:
www.gapminder.org

Takið eftir hvað Asíulöndin hafa fært sig ofarlega í tekjudreifigrafinu. Afríka situr eftir með sárt ennið, styrjaldir og 35% af fátækt heimsins. Árið 2015 er ætlað að sú prósenta verði 68%. Hvað er í gangi? Mörg Afríkuríki virðast ekki geta komið sér um óspilltu ríkisvaldi.

Eitt vandamál í stjórnmálum

Forsenda: Það er ekki hægt að rökræða við forsvarsmenn einhvers málefnis því viðkomandi er aldrei reiðubúinn til að skipta um skoðun. Uppbyggilegar samræður hefjast svona: “Þetta er það sem mér finnst vegna þess að ___ … en hvað finnst þér og afhverju?” Svo skiptast allir á skoðunum í fræðslutón en ekki hræðslutón. Áhorfendur byggja upp sínar eigin skoðanir.

Í stjórnmálum eru stjórnmálamenn forsvarsmenn sinna stjórnmálaflokka. Þetta er aðal ástæðan fyrir því að Silfur Egils eða sambærilegt efni verður aldrei skemmtilegt nema upp að vissu marki. Forsvarsmenn tala líka alltaf í sannfæringartón vegna þess að það er þeirra eina markmið. Þeir vilja ekki fræðast og þess vegna er fræðslugildi spjallþátta og stjórnmálaumræðu haldið niðri. Allar skoðanir eru litaðar og enginn er reiðubúinn til að fræða mann nema fjölmiðlar á góðum degi. Væri ekki ferskt að sjá stjórnmálamenn skipta um skoðanir en ekki bara skiptast á þeim í beinni útsendingu.

“Heyrðu þetta er bara nokkuð góður punktur hjá þér - aldrei að vita nema flokksmenn sannfærist líka!”

Milton F.: Drug war

Had drugs been decriminalized 17 years ago, “crack” would never have been invented (it was invented because the high cost of illegal drugs made it profitable to provide a cheaper version) and there would today be far fewer addicts. The lives of thousands, perhaps hundreds of thousands of innocent victims would have been saved, and not only in the U.S. The ghettos of our major cities would not be drug-and-crime-infested no-man’s lands. Fewer people would be in jails, and fewer jails would have been built.

Milton Friedman (1912-2006) í bréfi til Hvíta Hússins

Ljótufatafyrirpartí

Microsoft gerir vel: Office 2007

Office 2007 ribbon

Það má vel vera að Office pakkinn þjáist af einhverju alversta tilfelli af “bloati” sem ég hef séð. Þær breytingar sem hafa orðið á viðmótinu í 2007 útgáfunni eru samt frábærar og vel úr garði gerðar. Í stað þess að raða öllu upp í graut með einhverskonar “hey sjáðu allt sjittið sem þú getur gert í Office pakkanum” attitjúdi er búið að koma fyrir nýjum borða með skipunum, flipum og lógísku verkmiðuðu skipulagi. Nýju leturgerðirnar sem fylgja með eru jafnframt fallegar og fágaðar. PDF stuðningur er handan við hornið sem ókeypis viðbót sem hægt er að sækja á Microsoft heimasíðunni.

« Eldri fréttirNýrri fréttir »